Episodes

Sunday Feb 15, 2026
Sprengisandur 15.02.2026
Sunday Feb 15, 2026
Sunday Feb 15, 2026
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Alþjóðamál
Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur
Davíð Stefánsson formaður Varðbergs
Hin árlega Öryggisráðstefnan í Munchen stendur yfir. Fyrir ári settu Bandaríkjamenn allt i uppnám með ræðu varaforsetans, nú situr hann heima og tóninn er diplómatískari í garð Evrópu. En hefur stefnan eitthvað breyst?
Heilbrigðismál
Alma Möller, heilbrigðisráðherra
Bráðamótttaka Landspítalans stendur í ljósum logum. Starfsfólk óánægt, þjónustan versnar, sjúklingar á göngunum og ríkið ráðalaust eins og mörg undangengin ár. Hvað hyggst heilbrigðisráðherrann gera?
Evrópumál
Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður
Erna Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Heimssýn
Evrópuumræðan er komin á fullt en er hægt að greiða atkvæði um framhald viðræðna ef samningsmarkmið Íslendinga liggja ekki ljós fyrir áður en sú atkvæðagreiðsla fer fram? Er um eitthvað að semja hvort eð er?
Efnahagsmál
Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar
Eru launavísitölufrumvarp ríkisstjórnarinnar efnahagslegt sjálfsmark? Er útilokað fyrir Ísland að ná niður verðbólgu og 2,5% markmið Seðlabankans óraunhæft með öllu. Eru verðhækkanir m.ö.o. innbyggðar í íslenskt efnahagslíf.


No comments yet. Be the first to say something!