Episodes

Tuesday Oct 29, 2019
Reykjavík síðdegis þriðjudaginn 29. október 2019
Tuesday Oct 29, 2019
Tuesday Oct 29, 2019
Við hófum þáttinn á að tala við Kára Stefánsson um klónun gæludýra. Sjúkratryggingar og aðgerðir utan kerfis komu til umræðu, klukkubreytingar í Evrópu og að lokum áhrif loftmengunnar á heilsu fólks

Tuesday Oct 29, 2019
Rúnar - Samdi lag um að líta í eigin barm við skilnað
Tuesday Oct 29, 2019
Tuesday Oct 29, 2019
Raven kallar hún sig, hún Hrafnhildur Magnea. Hún kom til Rúnars með fyrsta lagið sem hún gefur út á íslensku. Lagið heitir Hjartað tók kipp og má heyra í lok viðtalsins.

Tuesday Oct 29, 2019
Rúnar - Heiðra konur í rokki með tónleikum
Tuesday Oct 29, 2019
Tuesday Oct 29, 2019
Þær Katrín Ýr og Erla Stefánsdóttir komu til Rúnars og sögðu frá tónleikum sínum á Hard rock þann 2. nóvember þar sem þær ætla að heiðra konur í rokki.

Tuesday Oct 29, 2019
Rúnar - Nemur jazz í Svíþjóð og er að gefa út sína fyrstu plötu
Tuesday Oct 29, 2019
Tuesday Oct 29, 2019
Marína Ósk kemur frá Reykjanesbæ, Keflavík, en er búsett í Stokkhólmi þar sem hún nemur jazz fræðin. Hún er að halda útgáfutónleika í Iðnó miðvikudaginn 30. okt. í tilefni af útgáfu á sinni fyrstu plötu. Marína Ósk kom til Rúnars í létt spjall og sagði frá hvers konar tónlist hún semur, ekki jazz samt, og heyra má lagið Vindurinn í lokin.

Thursday Oct 24, 2019
Reykjavík síðdegis fimmtudaginn 24. október 2019
Thursday Oct 24, 2019
Thursday Oct 24, 2019
Á þessum alþjóðlega baráttudegi kvenna ræddum við m.a. um nýja viðbragðsáætlun Landlæknis, sjúkraflug á landsbyggðinni og frábær en fjársvelt uppbygging ferðaþjónustu fyrir norðan. Ennfremur ræddum við við tvo lögmenn um dómara.

Wednesday Oct 23, 2019
Reykjavík síðdegis miðvikudaginn 23. október 2019
Wednesday Oct 23, 2019
Wednesday Oct 23, 2019
Við byrjuðum á því að heyra í Lögreglumönnum sem er létt eftir dóm dagsins og svo ræddi heilsuhagfræðingur við okkur um stöðu Landspítalans. Framkvæmdastjóri FÍB er ósáttur við afnám reglugerða, Formaður SI líst ekki á að starfsmenn fái fulltrúa í stjórn fyrirtækja og bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum hefur áhyggjur af stöðu sjúkraflugs

Tuesday Oct 22, 2019
Reykjavík síðdegis þriðjudaginn 22. október 2019
Tuesday Oct 22, 2019
Tuesday Oct 22, 2019
Svikasölusíður voru til umræðu í upphafi en svo heyrðum við í fjármálaráðherra um ýmis mál. Lífeyrissjóðirnir, koffínmálþing og grysjun reglugerða voru líka á dagskránni. Lögfræðiaðstoð Húseigendafélagsins komtil tals og svo má nota skógrækt gegn hlýnun.

Monday Oct 21, 2019
Reykjavík síðdegis mánudaginn 21. október 2019
Monday Oct 21, 2019
Monday Oct 21, 2019
Air Iceland connect kom nokkuð við sögu í þættinum, bæði vegna viðskiptahátta og sömuleiðis áforma um nýja flugstöð. Formaður VR vill að starfsfólk fái sæti í stjórn fyrirtækja. Við komumst að því að knattspyrnumenn eru útsettari fyrir elliglöpum og að rafhjólaslys færist í aukanna.

Friday Oct 18, 2019
Reykjavík síðdegis föstudaginn 18. október 2019
Friday Oct 18, 2019
Friday Oct 18, 2019
Við ræddum tíðahvörf á alþjóðadegi breytingarskeiðs kvenna, Katrín Jakobsdóttir ræddi við okkur í upphafi landsfundar VG, Skrifstofustjóri Alþingis ræddi sláandi tölur og svo við heyrðum um óhóflega koffíndrykkjaneyslu ungmenna.

Friday Oct 18, 2019
Reykjavík síðdegis fimmtudaginn 17. október 2019
Friday Oct 18, 2019
Friday Oct 18, 2019
Við heyrðum af gráum lista þjóða sem ekki gera nóg til að sporna við peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Samgönguáætlun var til umræðu auk þess sem við rýndum i starf ökukennarans í framtíðinni. Máltækniverkefni er nú í fullum fangi þar sem óskað er eftir röddum íslendinga og borgarfulltrúi vill að tekið verði í gagnið húsnæði fyrir fólk sem vill gefa hluti og þyggja.

