Episodes

Friday Oct 18, 2019
Bítið - Brot úr liðinni viku 14-18 október
Friday Oct 18, 2019
Friday Oct 18, 2019
Rafbílar og öryggi þeirra, fréttir vikunnar, Reykjalundur og skattamál voru meðal annars til umfjöllunar hjá okkur í Bítinu þessa vikuna

Thursday Oct 17, 2019
Reykjavík síðdegis - miðvikudaginn 16. október 2019
Thursday Oct 17, 2019
Thursday Oct 17, 2019
Við byrjuðum þáttinn í svefni en heyrðum svo af nýju frumvarpi um mannanafnalög. Samgöngumálin í borginni voru áberandi og svo ræddum við köld svæði á Íslandi.

Wednesday Oct 16, 2019
Wednesday Oct 16, 2019
Bítið 16 okt. Í dag heyrðum við í Ólafi Þór Ævarssyni nýjum frkvstj lækninga á Reykjalundi um allt havaríið þar, Birni Kristjánssyni tækniráðgjafa hjá FÍB en sjálfkeyrandi bílar eru bara að detta í notkun og í Ágústi Borgþórssyni um hvað hefur breyst eftir að við gengum í EES

Tuesday Oct 15, 2019
Reykjavík síðdegis þriðjudaginn 15. október 2019
Tuesday Oct 15, 2019
Tuesday Oct 15, 2019
Í upphafi þáttar ræddum við tannlækningaferðir til útlanda og svo um meintan kókaínfaraldur á Íslandi. Breitingaskeið karla var svo til umræðu og rúllukragatíska sama kyns. Forstjóri Landsvirkjunnar var í viðtali og svo ræddum við nýja bók um mannshvörf á Íslandi. að lokum tókum við svo stöðuna á hjólreiðamönnum.

Monday Oct 14, 2019
Reykjavík síðdegis mánudaginn 14. október 2019
Monday Oct 14, 2019
Monday Oct 14, 2019
Við veltum því fyrir okkur í upphafi hvort það sé ekki alveg í lagi að pissa og tannbursta sig í sturtu. Verkalýðsleiðtogi er ósáttur við Landsvirkjun og íþróttamaður sem aldrei ætlaði að hætta að borða kjöt er orðinn vegan. Við heyrðum af smávirkjunum, smádýrum og að lokum af ótrúlegri upplifun á Granda.

Monday Oct 14, 2019

Friday Oct 11, 2019
Reykjavík síðdegis föstudaginn 11. október 2019
Friday Oct 11, 2019
Friday Oct 11, 2019
Við héldum bleikan föstudaginn hátíðlegan svo og alþjóðadag eggsins og ræddum um Max 8 vélar Icelandair sem tóku á loft í dag. Umboðsmaður Lindex á Íslandi var í viðtali og svo ræddum við um fíkniefnafaraldurinn sem formaður Flokks fólksins kallar fíkniefnavá.

Thursday Oct 10, 2019
Reykjavík síðdegis fimmtudaginn 10. október 2019
Thursday Oct 10, 2019
Thursday Oct 10, 2019
Eurovisionæði hefi gripið um sig á Húsavík, en vinnuandinn er slæmur á Reykjalundi. Við kynntumst nýju leiðakerfi Strætó og leituðum svo úrræða fyrir geðsjúka fanga.

Wednesday Oct 09, 2019
Reykjavík síðdegis miðvikudaginn 9. október 2019
Wednesday Oct 09, 2019
Wednesday Oct 09, 2019
Í upphafi þáttar heyrðum við af hausaveiðurum í atvinnulífinu og svo ræddi formaður Samfylkingarinnar ástandið í Sýrlandi og Donald Trump. Við töluðum um vegakerfið, dómskerfið og vindmyllur í þættinum og heyrðum svo að hið opinbera gerir lítið í því að hagræða í rekstri þegar um hægist, heldur oft þvert á móti.

Wednesday Oct 09, 2019
Reykjavík síðdegis þriðjudaginn 8. október 2019
Wednesday Oct 09, 2019
Wednesday Oct 09, 2019
Við heyrðum af frumvarpi um refsileysi neyslu og vörslu fíkniefna og slógum svo á þráðinn til utanríkisráðherra sem hefur áhyggjur af stöðunni í Sýrlandi. Heyrðum við ennfremur í íslenskum kúrda sem ræddi um þjóð sína. Formaður VR ræddi vexti, samskiptastjóri Símans ræddi svikahringingar og við heyrðum í fyrrum knattspyrnukonu sem hefur rannsakað höfuðmeiðsli.

