Episodes

Monday Nov 10, 2025
Bítið - mánudagur 10. nóvember 2025
Monday Nov 10, 2025
Monday Nov 10, 2025
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór vítt og breitt yfir útlitsbreytingu Sjálfstæðisflokksins.
Tomasz Bereza hefur búið hér á Íslandi síðan árið 2013 og er ekki sáttur með íslenska heilbrigðiskerfið.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, ræddi við okkur um nýja lánamöguleika hjá bankanum.
Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir, stjórnendur Skuggavaldsins, ræddu samsæriskenningar sem eru notaðar til að réttlæta innrásina í Úkraínu.
Dagbjört Rúriksdóttir, tónlistarkona settist niður með okkur og ræddi trúna og tónlistina.
Enski boltinn.

Sunday Nov 09, 2025
Sprengisandur 09.11.2025 - Viðtöl þáttarins
Sunday Nov 09, 2025
Sunday Nov 09, 2025
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Alþjóðamál
Valur Gunnarsson, rithöfundur
Valur fjallar um nýja bók sína, Grænland og fólkið sem hvarf, þar sem hann reynir að ráða gátuna um Íslendingana sem höfðust við á Suður-Grænlandi fram á 15du öld en hurfu eftir það sporlaust.
Stjórnsýsla
Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra
Sigmar og Sigríður fjalla um stöðu Ríkislögreglustjóra í ljósi frétta af fjármálum embættisins. Getur lögreglustjórinn setið áfram?
Vaxtamál, fjármagnskostnaður
Dagur B. Eggertsson alþingismaður og Lilja D. Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins rökræða þá hugmynd hvort upptaka Evru gæti lækkað vexti á Íslandi, ef ekki sú leið, hver þá?
Efnahagsmál/alþjóðamál
Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræðingur,
Þorsteinn fjallar um ískyggilega stöðu á bandarískum hlutabréfamarkaði þar sem verð hefur hækkað gríðarlega, svo mikið að margir búast nú við snöggri og afdrifaríkri leiðréttingu - sumsé miklu verðfalli með tilheyrandi áhrifum heima fyrir og út um allan heim. Samlíkingar hafa verið dregnar við hrunið 1929, dotcom bóluna og fleiri ámóta áföll. Er efnahagshrun framundan í Bandaríkjunum?

Friday Nov 07, 2025
Reykjavík síðdegis - föstudagur 7. nóvember 2025
Friday Nov 07, 2025
Friday Nov 07, 2025
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Jóhannes Rúnarsson - framkvæmdarstjóri Strætó
- Björn Ingi Hrafnsson stjórnandi hlaðvarpsins Grótkastið og aðstoðarmaður formanns Miðflokksins
- Símatími
- Rut Gunnarsdóttir verkefnastjóri og lögfræðingur hjá KPMG um lög er varða rétt uppljóstrara og þöggun
- Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur varðandi framlög Íslands til ESB vegna EES samningsins sbr Jón Gerald úr símatímanum í gærGreipur Hjaltason um skort á greiðslum fyrir vinsæl myndskeið á TikTok og Instagram

Friday Nov 07, 2025
Bítið - föstudagur 7. nóvember 2025
Friday Nov 07, 2025
Friday Nov 07, 2025
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Hanna Birna Kristjánsdóttir ræddi við okkur um heimsþing kvenleiðtoga sem fer fram í Hörpu eftir helgi.
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, settist niður með okkur.
Hans Steinar Bjarnason hjá SOS barnaþorpum og Hjördís Guðmundsdóttir hjá Almannavörnum fóru yfir fréttirnar.
Geimverusérfræðingurinn Gunnar Dan kíkti í spjall um geimverur og nýju bókina UFO101.
Brynja Dan ræddi við okkur um afsláttardaginn 11.11.
Álfrún Gísladóttir, leikkona og höfundur verksins Dead Air, spjallaði við okkur.
Leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson ræddi við okkur nýja bíómynd og Áramótaskaupið.
Róbert Aron og Adam Helgason frá Brixton kíktu með ljúffengan mat.

Thursday Nov 06, 2025
Reykjavík síðdegis - fimmtudagur 6. nóvember 2025
Thursday Nov 06, 2025
Thursday Nov 06, 2025
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Sigurður Örn Ragnarsson járnkarl og einn eigenda Greenfit
- Gylfi Magnússon prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrum viðskiptaráðherra um kælingu hagkerfisins
- Símatími
- Ingibjörg Ísaksen formaður þingflokks Framsóknarflokksins um úrræðaleysi stjórnvalda í efnahagslífinu
- Páll Pálsson fasteignasali
- Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði um pólitíkina í borginni
- Atli Stefán Yngvason framtíðarstjóri Mílu og einn stjórnenda Tæknivarpsins um háhraðanet og gervihnattanet

Thursday Nov 06, 2025
Bítið - fimmtudagur 6. nóvember 2025
Thursday Nov 06, 2025
Thursday Nov 06, 2025
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni, settist niður með okkur og ræddi hagræðingu, eða skort á henni, í Reykjavíkurborg.
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, ræddi þingsályktunartillögu um öryggis- og varnarmál.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar ræddu við okkur um óveðursský í íslensku samfélagi.
Páll Höskuldsson flutti til Noregs fyrir 16 árum síðan og bar saman lífsgæði þar og á Íslandi.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, stjórnarformaður DRM-LND og Sesselja Katrín Hauksdóttir, eigandi DRM-LND settust niður með okkur.
Sævar Kristinsson og Karl G. Friðriksson voru að gefa út bókina Síungir karlmenn.

Wednesday Nov 05, 2025
Reykjavík síðdegis - miðvikudagur 5. nóvember 2025
Wednesday Nov 05, 2025
Wednesday Nov 05, 2025
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Gísli Jónsson sérfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins
- Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi varaformaður Viðreisnar um ríkisvæðingu húsnæðismarkaðarins
- Símatími
- Kári Stefánsson stofnandi og fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar um dóm Hæstaréttar vegna Persónuverndar
- Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn vegna vasaþjófa
- Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um málefni Ríkisendurskoðanda
- Samúel Karl Ólason fréttamaður Vísis um nýjan borgarstjóra New York
- Ólafur Kristjánsson, Óli tölva hjá netkynning.ai um fljúgandi bíla og eru snjallsímar að verða óþarfir?

Wednesday Nov 05, 2025
Bítið - 5. nóvember 2025
Wednesday Nov 05, 2025
Wednesday Nov 05, 2025
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Garðar Atli Jóhannsson, ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Verkþekkingu, ræddi við okkur vítt og breitt um byggingariðnaðinn.
Heiðbrá Ólafsdóttir, kúabóndi og situr í stjórn Miðflokksins, ræddi við okkur um hrámjólk.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins ræddu blikur á lofti í íslensku samfélagi.
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, skoðaði samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli.
Jón Þór Víglundsson frá Landsbjörgu ræddi Neyðarkallinn sem fer í sölu í dag.
Helga Arnardóttir fór yfir nýja þáttinn sinn, Blóðbönd.

Tuesday Nov 04, 2025
Reykjavík síðdegis - þriðjudagur 4. nóvember 2025
Tuesday Nov 04, 2025
Tuesday Nov 04, 2025
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Sigrún Helga Lund prófessor í tölfræði við HÍ vegna málstofu Reykjavíkur Akademíunnar um gervigreind á fimmtudag: "Verða háskólar óþarfi með tilkomu gervigreindar?"
- Dagur B Eggertsson um vaxtamun milli evrulána og krónulána
- Símatími
- Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar um atvinnuleysi í ljósi uppsagna hjá Icelandair
- Valdimar Óskarsson netöryggisfræðingur og framkv stj Keystrike um öryggisbresti í ýmsum kerfum
- Margrét Ólafía Tómasdóttir heimilslæknir og fyrrverandi formaður Félags íslenskra heimilslækna um svefnlyf
- Magnús Jochum Pálsson um þættina Witcher á Netflix þar sem var skipt um aðalleikara í fjórðu seríu

Tuesday Nov 04, 2025
bítið -þriðjudagur 4. nóvember 2025
Tuesday Nov 04, 2025
Tuesday Nov 04, 2025
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Sigurður Már Jónsson, blaðamaður ræddi um Panama-skjölin og meint skattaskjól.
Eva Lind Sveinsdóttir Ringstead er með POTS og segir lífið hafa hríðversnað eftir að hætt var að niðurgreiða vökvagjöf við sjúkdómnum.
Páll Halldór Halldórsson, Hnífsdælingur fór yfir Óshlíðarmálið með okkur.
Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur ræddi við okkur um hrámjólk.
Sveinbjörn Claessen, hæstaréttarlögmaður hjá Landslögum, fór yfir úrelt skaðabótalög.
Egill Pálsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Mauls, settist niður með okkur og ræddi vöxt fyrirtækisins.

