
522.6K
Downloads
2080
Episodes
Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28. ágúst árið 1986.
Episodes

Jul 27, 2026

Jul 26, 2026
Jul 26, 2026
1 hr 34 min
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Sjávarútvegur/Evrópumál
Kristján Vigfússon, dr. í stefnumótun við HR
Kristján ræðir rannsóknir sínar á íslenskum sjávarútvegi og forskoti
hans í alþjóðlegum samanburði og veltir upp möguleikum á auknum
umsvifum íslenskra fyrirtækja ef til kæmi aðild að ESB.
Dómsmál
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra
Dómsmálaráðherra ætlar ekki að aðhafast neitt í fyrirkomulagi á sölu
áfengis, þrátt fyrir miklar breytingar á því og niðurstöður dómstóls
um lögmæti þeirra breytinga. Hvernig hyggst hún bregðast við starfsemi
erlendra veðmálafyrirtækja á Íslandi og skyldum málum, t.d, tekjuöflun
stórra samfélagsmiðlafyrirtækja, þar sem lögsaga íslenska ríkisins er
ekki ótvíræð.
Stjórnmál/Evrópumál
Sigríður Á Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins
Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar
Hveru alvarleg mistök voru það hjá utanríkisráðherra að lleiðrétta
ekki frétt þar sem haft var ranglega eftir henni að ráðherrann hefði
rætt við forsætisráðherra Hollands um varanlega undanþágur fyrir
Íslendinga frá sjávartúvegsstefnu ESB?
Kjarasamningar
Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ
Er orðið ljóst að taka þarf upp kjarasamninga í haust - verðbólgutölur
benda til þess en hvað vill forseti ASÍ að gerist. samtökin hafa talað
fyrir ráðstöfunum í efnahagsmálum frá í febrúar en litla athygli
fengið.

Jul 25, 2026

Jul 24, 2026

Jul 23, 2026
Jul 23, 2026
1 hr 10 min
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi hjá bjornberg.is - Það eru fimm útborgunardagar fram að jólum.
- Halla Gunnarsdóttir formaður VR um nýjar verðbólgutölur fimm komma þrjú prósent hækkun um núll komma eitt prósentustig
- Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunnar - um fölsuð lyf og ólöglega lyfsölu
- Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss - um gróðaverðbólgu
- Jean-Rémi Chareyre um áhrif hitabylgjunnar í evrópu á daglegt líf í Frakklandi
- Valdimar Óskarsson framkvæmdastjóri Keystrike - Erum við að missa tökin varðandi gervigreindina?
- Björgvin Þór Rúnarsson foreldri landsliðsmanns í körfubolta - um kostnað leikmanna í yngri landsliðum

Jul 23, 2026

Jul 22, 2026
Jul 22, 2026
1 hr 14 min
Öll viðtöin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Arnar Jökull Agnarsson ábyrgðarmaður þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair - um protocol í flugstjórnarklefa
- Dagur B Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar um skýrslu sem unnin var að frumkvæði og beiðni Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins, Félags atvinnurekenda og Viðskiptaráðs árið 2014
- Símatími
- Davíð O Arnar yfirlæknir hjartalækninga Landspítala - Hvernig á maður að bregðast við gagnvart hitabylgju
- Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi - um 12 ára gamla skýrslu varðandi ESB inngöngu
- Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtaka um ferðaþjónustu - erum við að nýta Ísland sem svalan vikomustað
- Krstján Aðalsteinsson formaður málarameistarafélags Íslands Hvernig líður málurum hér á höfuðborgarsvæðinu í rigningunni? Það er afkomubrestur í útimálningu á suðvestur horninu

Jul 21, 2026
Jul 21, 2026
1 hr 1 min
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Steinar Smári Guðbergsson meindýraeyðir um helstu verkefni sumarsins
- Ragnar Þór Ingólfsson félagsmálaráðherra um mál nýbökuðu tvíburaforeldranna sem hafa kært ákvörðun Vinnumálastofnunar, sem synjaði móðurinni um fæðingarorlof
- Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja um stórátak gegn fíknivanda
- Jóhannes Loftsson formaður Ábyrgðar og stjórnarmaður í Heilsuvon.is - um afleiðingar COVID
- Davíð Már Sigurðsson kennari - Um öryggisvottaða leikvelli

Jul 21, 2026

Jul 19, 2026
Jul 19, 2026
1 hr 33 min
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Ferðaþjónusta/skattheimta
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF
Ferðaþjónustan er ósátt við ríksstjórnina, ósátt við nýja skatta og þá stefnu sem ríkisstjórnin hefur í atvinnumálum. Þrátt fyrir samtal milli greinar og atvinnuvegaráðuneytisins telur ferðaþjónustan alltof langt gengið í innleiðingu nýrra skatta.
Loftslagsmál/alþjóðasamningar
Bjarni Már Magnússon, lögmaður
Fjallað um ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins í Haag um skyldur ríkja í loftslagsmálum, álit sem þykir marka tímamót vegna þess hversu afdráttarlaus það er um ábyrgð ríkja í þessum málaflokki og skyldur þeirra, skyldur sem jafnvel höggva í þjóðarrétt.
Evrópumál
Birgir Ármannsson, fyrrverandi fors. Alþingis
Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður
Framhald umræðu um Evrópumál, afsal eða framsal fullveldis til Evrópusambandsins, nauðsynlegar stjórnarskrárbreytingar ef til inngöngu kemur og útfærslu þeirra.
Bretland/stjórnmál
Erlingur Erlingsson, sagnfræðingur
Erlingur sem búsettur eru í Bretlandi, fer yfir nýjustu hræringar í breskum stjórnmálum, nýr forsætisráðherra tekur við 20. júlí, sá áttundi á 10 árum, þessi breyting undirstrikar enn og aftur ólguna í breskum stjórnmálum.
