
522.7K
Downloads
2080
Episodes
Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28. ágúst árið 1986.
Episodes

Jun 16, 2026
Jun 16, 2026
1 hr 7 min
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Björg Jónsdóttir verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg, Elísabet Ögn Jóhannsdóttir hjá Akureyri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings og Ólöf Dómhildur upplýsingafulltrúi Ísafjarðarbæjar fóru yfir dagskrá 17. júni með okkur
- Berglind Guðmundsdóttir hjá SJÁ og Magnea Gná Jóhannsdóttir hjá Xnei
- Símatími
- Ólafur Árni Sveinsson taugalæknir
- Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar
- Hrafnkell V Gíslason forstjóri Fjarskiptastofu
- Bjarni Fritzson nýr formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar

Jun 16, 2026
Jun 16, 2026
1 hr 24 min
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sigmari og Ómari.
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra ræddi við okkur um laun opinberra starfsmanna og launahækkun kjörinna fulltrúa.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, ræddi við okkur um matarverð á Íslandi.
Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni i Reykjavík, settist niður með okkur
Halldóra Mogensen, fyrrverandi þingmaður og stofnmeðlimur Samtaka um mannvæna tækni, ræddi við okkur um borgaralaun og gervigreind.
Úlfar Árdal, eimingarmeistari hjá Kveldúlfi Distillery og Kristján Helgi Olsen Ævarsson, vörumerkjastjóri áfengra drykkja hjá Ölgerðinni, ræddu við okkur um Brennivín.

Jun 15, 2026
Jun 15, 2026
1 hr 18 min
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Davíð Örn Símonarson framkvæmdastjóri og einn stofenda Smitten stefnumótaforritsins um rauð og græn flögg á stefnumótaforritum
- Runólfur Ólfasson framkvæmdastjóri FÍB og Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ um verðlagseftirlit með bensíni
- Símatími
- Ari Edwald stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur
- Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri hjá Netvís netöryggismiðstöðvar um símanotkun barna
- Halla Hrund Logadóttir þingkona Framsóknarflokksins um vindorkuver
- Baldur Hermannsson guide í Þverá og Kjarrá

Jun 15, 2026
Jun 15, 2026
1 hr 54 min
Bítið á Bylgjunni með Lilju, Sigmari og Ómari.
Kristján Ingi Mikaelsson, fjárfestir og sérfræðingur í tækni, ræddi við okkur um mögulega gullöld gervigreindar í Bandaríkjunum.
Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur ræddi við okkur um hve ríkt Ísland er í raun.
Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, ræddi við okkur um aðgerðir lögreglu á veitinga- og skemmtistöðum.
Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um áhugaverða könnun sem hann sendi út.
Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson var á línunni og ræddi sundið niður Lagarfljótið sem hann þreytir í dag.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar og Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, ræddu US Open, Regluvörðinn og almennt um golf.
Davíð Stefán Guðmundsson, Formaður félags blóðgjafa, ræddi við okkur um vöntun á blóðgjöfum.

Jun 14, 2026
Jun 14, 2026
1 hr 31 min
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Sagnfræði
Guðmundur Hálfdánarson, prófessor emeritus
Guðmundur er nú að láta af störfum við HÍ, orðinn 70 ára og fer yfir ferilinn og helstu hugðarefni, sem einkennt hafa farsælan feril við sagnfræðirannsóknir, sérstaklega hugmyndir um þjóð, þjóðerni, fullveldi og sjálfstæði.
Efnahagsmál/evrumál
Jón Helgi Egilsson dr. í hagfræði
Jón sem er fyrrverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, ræðir um upptöku evru fyrir Íslendinga og gagnrýnir þá hugmynd harðlega. Hann telur að upptaka evru myndi leiða atvinnuleysi yfir Íslendinga og kostnaðurinn sé því mun meiri en ábati kynni að vera.
Menntamál
Þórdís Sigurðardóttir, forstjóri Menntamálastofnunar
Þórdís ræðir ýmsa þá gagnrýni sem fram hefur komið á menntakerfið hér á landi, m.a. vanrækslu í námsefnisgerð, framlög til skólakerfisins, samræmingu einkunnagjafar á milli skóla og fleira en einnig framfarir sem nýr námsmatsferill á að hafa í för með sér.
Velferðarmál
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
Kolbrún ræðir málefni barna, m.a. brottfararstöð hælisleitenda og gagnrýni á hana, þingsályktunartillögu um farsæld barna og framkvæmd velferðarlaga barna af hálfu Ríkisendurskoðunar.

Jun 13, 2026

Jun 12, 2026
Jun 12, 2026
53 min
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri brunavarna Árnessýslu
- Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður Framsóknarflokksins fyrrverandi innviðaráðherra og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra um samgönguáætlun
- Símatími
- Þórarinn Hjartarson þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling
- Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar Bergmáls
- Páll Pálsson fasteignasali hjá pálsson punktur is um sumarhús

Jun 12, 2026
Jun 12, 2026
1 hr 19 min
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar fer fyrir hagræðingarhópi sem hefur hafið störf, ræddi við okkur um mögulega hagræðingu innan borgarkerfisins.
Þorvaldur Flemming var í beinni útsendingu frá Danmörku og fór yfir boltann.
Tónlistarkonan Greta Salóme og íþróttafréttamaðurinn Valur Páll Eiríksson fóru yfir fréttir vikunnar.
Óli tölva kom í heimsókn með vefsíðuna heimspuls.is.
Davíð Rúnar Bjarnason ræddi við okkur um Icebox sem er í kvöld.
Lalli töframaður ræddi við okkur um Töfrasprota.

Jun 11, 2026
Jun 11, 2026
1 hr 5 min
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma:
- Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður um HM í knattspyrnu sem hefst í dag
- Agnes Ósk Marzellíusardóttir lögreglufulltrúi í fjármunabrotadeild um netsvik
- Símatími
- Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar um brottfararstöð
- Már Wolfgang Mixa dósent við Viðskiptafræðideild HÍ um vexti og verðbólgu hér heima og í Bandaríkjunum
- Valdimar Óskarsson netöryggisfræðingur og framkvæmdastjóri Keystrike um stafrænt fullveldi Íslands
- Andri Snær Magnason rithöfundur um myndina Time and Water

Jun 11, 2026
Jun 11, 2026
1 hr 28 min
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari.
Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í Regluvörslu Landsbankans, ræddi við okkur um netbrot og fjársvik.
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokks, ræddi við okkur um gullhúðun.
Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, fór yfir ástæður fyrir því að Ísland ætti að klára aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Margrét Reynisdóttir stofnandi og ráðgjafi hjá Gerum betur, settist niður með okkur.
Hinrik Ólafsson, leikstjóri og leikari með meiru, ræddi við okkur um myndina Above Iceland.
Sölvi Pálsson, verkefnastjóri stafrænna lausna og TikTok stjarna, ræddi við okkur um sjónvörp.
